Vé
Landið man tíma án orða
í stórum dráttum
gnæfir það óbreytt
en við erum ekki að horfa
á stóra drætti
við drögum þá smáu
staði innan staða
tifandi helgidóma
þangað leitum við
til að verða aftur agnir
innan um lággróðurinn
með köngulónum
og berjunum sem við misstum
ofan í lyngið
í leiðslu
skiljum við eftir eyður
glufur milli skýja
tóm ár
hólf fyrir orðin
þau smækka þau týnast
þeim fækkar
bilin á milli þeirra vaxa