Velkomin!
Hér fyrir neðan er yfirlit yfir listaverk sem verða á sýningunni Vé í Listasal Mosfellsbæjar. Opnunin verður þann 17. október en áskrifendum á póstlistanum mínum býðst að sjá verkin fyrirfram hér á þessari síðu.
Smellið á mynd til að sjá hana stærri, þá sjást líka upplýsingar um verkið ef músin er yfir myndinni (ath þetta virkar ekki svo vel í síma, skoðið helst frekar í tölvu, eða sendið mér fyrirspurn ef ykkur vantar upplýsingar um ákveðin verk).
Öll verkin eru frá þessu ári, það fyrsta málað í mars, það síðasta í október. Verkin eru flest unnin á fundnar plötur og hafa sum hver grófa kanta, jafnvel göt eða skekkjur.